21. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 4. desember 2023 kl. 09:19


Mætt:

Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:19
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:19
Greta Ósk Óskarsdóttir (GÓÓ), kl. 09:19
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 09:42
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:19
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:19
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT), kl. 09:19
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:19

Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi. Greta Ósk Óskarsdóttir vék af fundi milli kl. 10:36 - 10:39.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:19
Dagskrárlið frestað.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar - Fangelsismálastofnun - Aðbúnaður - endurhæfing - árangur. Stjórnsýsluúttekt, skýrsla til Alþingis nóvember 2023 Kl. 09:19
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur, Gest Pál Reynisson, Magnús Lyngdal Magnússon og Líf G. Gunnlaugsdóttur frá Ríkisendurskoðun.

3) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:36
Nefndin kannaði tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Gretu Óskar Óskarsdóttur, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin var gefin út í samræmi við 113. gr. kosningalaga, nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Gretu Óskar Óskarsdóttur.

4) Önnur mál Kl. 10:39
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:42